Austurhólar 4
Sveitarfélagið Árborg / Selfossi
Laus til leigu í nýbyggðu og glæsilegu húsi er þessi vel skipulagða 4ra herbergja íbúð með stóru alrými!
Velkomin inn í fallegt 111,3 fm heimili að Austurhólum 4 á Selfossi. Íbúðin er með sér inngangi af glæsilegu stigahúsi. Austurhólar er í vel staðsettu hverfi og stutt er í þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Íbúðin er á 2 hæð í lyftuhúsi.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp, innan forstofu er sér 9,2 fm sjónvarps eða skrifstofurými. 3 rúmgóð og björt herbergi eru í íbúð, öll með fataskápum. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu alrými íbúðar. Í eldhúsinu er gott skápapláss,úr stofurýminu er gengið út á svalir með glæsilegu útsýni. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla 3,6fm er innan íbúðar.
Gardínur, ljós, uppþvottavél, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Fjöldi bílastæði er við húsið sem eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi hefur verið sett upp.
*Myndir eru af sambærilegri íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 305.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
111,3 Fermetrar
Íbúðanúmer:208