Spurt og svarað

  • Hér að neðan er að finna svör við algengustu spurningum sem væntanlegir og núverandi leigutakar velta fyrir sér.

  • Allar eignir sem lausar eru til leigu hverju sinni eru auglýstar á vefsíðu okkar.

  • Undir „Leiguíbúðir“ á heimasíðu okkar er hægt að sjá allar eignir sem lausar eru til leigu. Með því að velja þá eign sem þú hefur áhuga á og velja „sækja um íbúð“, er hægt að fylla út umsókn og senda inn. Lestu meira um umsóknarferlið hér.

  • Við leggjum okkur fram við að svara svo fljótt sem auðið er.

  • Ívera eru með Eignavakt, þar sem hægt er að skrá sig og hvernig íbúð óskað er eftir. Þegar sambærileg íbúð fer í auglýsingu, fær viðkomandi tilkynningu um það á tölvupósti.

  • Þegar tilvonandi leigutaki hefur ákveðið að taka eignina á leigu, er greitt staðfestingar– og umsýslugjald, til að festa sér eignina. Staðfestingar- og umsýslugjald er gjald fyrir ástandsskýrslu sem gerð er bæði við innskoðun og útskoðun á eign sem og annar kostnaður, t.d vegna skjalagerðar. Ef viðkomandi hættir við að leigja eignina, er gjaldið ekki endurgreiðanlegt. Sjáðu verðskrá okkar hér.

  • Heimstaden hefur til yfirráða nokkur hús þar sem gæludýr eru leyfð, það er sérstaklega tekið fram í auglýsingu þegar það á við.

  • Ef eitthvað bilar, þarftu að senda inn þjónustubeiðni á Mínum Síðum, hér getur þú nálgast leiðbeiningar um hvernig senda skuli inn beiðni.

  • Uppsögn er send í gegnum Mínar síður eða með tölvupósti á ivera@ivera.is.

    Við leiðbeinum þér svo með framhaldið og sendum þér gátlista yfir það sem þarf að gera áður en íbúðinni er skilað.

  • Skil á íbúðinni og úttekt miðast við að íbúðin er tilbúin til innflutnings fyrir næsta leigutaka. Við afhendum gátlista fyrir skil.
    Grundvallarreglan um frágang íbúða er að þær séu hreinar í hólf og gólf, veggir heilir, leigutaki skal spartla í þau göt sem hann hefur gert á veggi eignarinnar og íbúð skal vera nýmáluð. Ívera býður upp á að mála íbúðir fyrir leigutaka, sjá verðskrá hér.

    Gluggar og svalahurðir eiga að vera hreinir einnig skulu gólf ávallt þrifin (ekki nauðsynlegt að bóna gólfið). Þrífa skal allar lofttúður og skápa utan sem innan og tæki sem tilheyra íbúðinni. Perustæði eiga að vera með ljósaperum í öllum herbergjum.

    Leigutaki skal láta aflétta leigusamningi (hafi honum verið þinglýst) við lok leigusambands. Ef samningi er ekki aflétt þá tefur það fyrir uppgjöri og endurgreiðslu á leigutryggingu.

    Þegar lokaúttekt hefur farið fram hefur leigutaki ekki kost á því að gera við eða framkvæma aðrar viðgerðir á íbúðinni, íbúðin á að vera tilbúin frá leigutaka þegar lokaúttekt fer fram.

    Hér er nægt að nálgast frekari upplýsingar um skil á íbúð.

  • Til þess að umsókn teljist gild, þurfa að fylgja með lánshæfismati frá Credit Info og sakavottorð frá Sýslumanni. Lestu meira um umsóknarferlið hér.

  • Innifalið í leigu er meðal annars rekstrarkostnaður vegna:

    -Hita af íbúð leigutaka

    -Snjómokstur

    -Slátt á grasi

    -Húsvörslu

    -Rekstrarkostnaður sameignar, svo sem hita og rafmagn í sameign, eftirlit og rekstur á lyftu, ræstingar á sameign o.fl.

Er einhverri spurningu ósvarað?

Þú getur alltaf haft samband

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn